|
Skrifað af: Magdalena Einarsdóttir
|
|
Laugardaginn 24. mars var haldið ísmót Neista á Svínavatni. Veður var eins og best var á kosið enda vorið á næstu grösum. Pétur keppti í tölti, opnum flokki á Prímus frá Brekkukoti og gekk það ágætlega. Þeir enduðu í 2. sæti og áttu það fyllilega skilið.
Hér er sýnishorn af frammistöðu þeirra félaga á laugardaginn.

|
|
Fleiri myndir
|
|
Graðhestar síðastliðins sumars. |
|
|
Skrifað af: Magdalena Einarsdóttir
|
|
Líkt og undanfarin sumur höfum við fengið ungfola til afnota úr ræktun Lenu Zielinski. Síðastliðið sumar voru hjá okkur tveir folar, Prinsinn og Flögri frá Efra-Hvoli. Prinsinn er undan Álfi frá Selfossi og Perlu frá Ölvaldsstöðum en Flögri er undan Hugin frá Haga og Pöndru frá Reykjavík. Þeir eru báðir fæddir 2008.
|
|
Nánar...
|
|
Skrifað af: Magdalena Einarsdóttir
|
|

Við óskum öllum vinum og ættingjum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári um leið og við þökkum fyrir árið sem senn er liðið.
|